Kaupskilmálar fyrir vörur og þjónustu Amper

Okkur hjá Amper er mikið í mun að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með þá upplifun sem þeir fá þegar þeir versla hjá okkur.

Skilgreining

Seljandi er Amper Orka ehf, kennitala: 471123-0210, virðisaukaskattsnúmer 154494. Amper er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.amper.is

7 daga auglýsingavernd

Ef vara er uppseld á meðan útgefið blað á vegum seljanda er í gildi þá útvegar seljandi hana innan eðlilegs afhendingartíma eða sambærilega eða dýrari vöru á sama verði. Þetta á ekki við um vörur sem auglýstar eru í "takmörkuðu magni". Vörur á vefsíðu seljanda teljast ekki til auglýstra vara og enn fremur á þetta ekki við um vörur á netverði.

Pöntun

Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í skrefi 3.  Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli, grunur um lögbrot og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.  Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Upplýsingar

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana.

Enn fremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð

Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðlækkanir og verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki aftur kræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega (skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Netverð gildir aðeins þegar vara er keypt í Vefverslun. Almennt verð sem gildir í verslunum Amper er birt yfir ofan netverðið, ef við á.

Greiðsla

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 8 daga, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest. Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.

Yfirferð á vörum

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar.

Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 4 daga. Eftir 4 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Réttur við galla eða vöntun

Ef að varan er gölluð eða eitthvað vantar í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Seljanda er heimilt að fara þá leið sem veldur honum minnstri fyrirhöfn eða kostnaði. Kjósi kaupandi aðra leið, skal hann greiða þann kostnað sem bætist við af þeim sökum.

Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.

Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár. Kvörtunarréttur felur ekki nauðsynlega í sér rétt til úrbóta, afsláttar eða bóta.

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Ábyrgð

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu til einstaklinga . Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ef söluhlut er ætlaður verulega lengri líftími en almennt gerist þá er frestur til að kvarta 5 ár.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef varan hefur verið opnuð eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skv. 8. grein þessa skilmála. Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram. Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir 2 ára ábyrgðartíma.. Seljandi þarf þó að taka tillit til 5 ára kvörtunarfrests ef meðallíftími tækis er ætlaður verulega lengri en almennt gerist. Seljandi áskilur sér rétt til að sannr

Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Sé ekki mögulegt að ná sáttum er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagna umdæmi seljanda.

Lög og varnarþing:

Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Amper og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á amper@amper.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað til Amper til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsíma Amper þar sem honum verður vísað á réttan stað.